Við í NemaForum erum farin að una okkur vel í því virðulega húsi sem Hafnarhvoll er: Tryggvagötu 11, á 4. hæð. 
Hér störfum við undir sömu formerkjum menningar og fræðslu og fyrr. 
Gestir okkar ljúka lofsorði á húsakynnin sem þykja fara einkar vel með fólk sem deilir geði á góðri stund.



Auk þess að halda NemaForum námskeið eru stofurnar til leigu fyrir smærri veislur, fundi, ráðstefnur
og önnur mannamót. 
Stemmningin í Bogastofunum í vesturendanum í ljósaskiptunum er engu lík!
Smellið myndaborðana til að sjá meira frá starfseminni.




Við viljum sjá gesti okkar nýta sköpunarverk NemaForum við hinar breytilegar aðstæður sem kalla á 
mannamót af ólíku tilefni. Látið endilega þau skilaboð óma um fjöll og dali... svo fleiri fái notið.. 





NEMAVÖRUR - TÆKIFÆRISGJAFIR
Hinar ástsælu og notadrjúgu Nema-vörur fyrir alla sem sýsla með fartölvur og bækur fást áfram hjá okkur.
Háls- herða- og handamein þurfa öfluga mótspyrnu, að ekki sé talað um blessað bakið.
Til að skoða nánar má smella á myndina hér að neðan.



Við bjóðum Áhugasviðsgreiningar og Leiðsögn um betri námshætti, sem fjöldi einstaklinga hefur nýtt sér til hagsbóta í námi og starfi.
Nánari upplýsingar - asta@nema.is /821 2428